Barðavogur 30, Reykjavík
Borgir s. 588-2030 kynna - Fína 4gra til 5 herbergja efri sérhæð í tvíbýli í vinsælu hverfi.
Bílskúr er nýinnréttaður sem stúdíó íbúð og leigð út sem slík. Eigandi getur því haft góðar leigutekjur.
Stór sérafnotareitur og 14 fm. geymsluskúr sem séreign á lóð en hann er ekki inni í stærðar skráningum.
Íbúðin uppi er skráð 123,7 fm og íbúðin í bílskúrsplássinu er skráð 32,1 fm og svo óskráður geymsluskúr 14 fm.
Stórir gluggar í stofu gera íbúðina einkar bjarta.
Lýsing íbúðar:
Fyrst er komið inn í rúmgóða forstofu með fatahengi og bekk.
Þar inn af er gengið inn í stóra opna stofu sem upphaflega var þrjú rými. Stórir gluggar vísa í suðvestur svo rýmið allt er bjart.
Stofunni er auðveldlega hægt að skipta upp í tvö rými.
Á hægri hönd frá anddyri er rúmgott eldhús þar sem pláss er fyrir eldhúsborð. Þar eru tekk-skápar með hvítum hurðum og svartri borðplötu.
Inn af eldhúsi er þvottahús / geymsla og þar inn af er lítið búr.
Á vinstri hönd frá andyri eru svefnherbergin og baðherbergið. Gangur afmarkar þessi rými frá stofunum.
Fyrst er komið í stórt svefnherbergi með skáp og glugga sem vísar í norð-austur.
Þar næst tekur við uppgert baðherbergi. Þar er baðkar með sturtu og handklæðaofn. Vaskaskápur og speglaskápur. Ljósar flísar eru á gólfi og veggjum. Opnanlegt fag er á baðherbergi svo einfalt er að lofta út.
Þar til hliðar er komið inn í hjónaherbergið. Þar er skápur og gluggi sem vísar í norð-austurátt.
Því næst er komið í lítið barnaherbergi sem einnig er hægt að nýta sem skrifstofu.
Af ganginum er gengið út á stórar svalir. Lóðin þar fyrir neðan er sérafnotareitur efri hæðar og því heimilt að setja þar pall.
Úrvals parkett er á gólfi í tveimur stærri svefnherbergjunum, stofum og eldhúsi. Parket var slípað af seljendum við kaup. Plastparket er á gólfi minnsta herbergis. Flísar á baðherbergi.
Bílskúr innréttaður sem stúdíó-íbúð.
Hægt er að hafa leigutekjur af stúdíó-íbúð í bílskúr. Íbúðin er nýinnréttuð með ljósri eldhúsinnréttingu og baðherbergi er flísalagt með sturtu, vaskaskáp og klósetti. Ljóst parket er á gólfi íbúðar.
Framgarður er sameign íbúðanna tveggja að frátöldu bílastæðinu fyrir framan bílskúrinn, sem er séreign efri hæðar.
14 fm. geymsluskúr á austurhlið lóðarinnar er í séreign efri hæðar.
Nánari upplýsingar veita Ægir s. 896-8030 eða aegir@borgir.is og Ólafur Freyr s. 662-2535 eða olafur@borgir.is.