Hofsvík 7, 805 Selfoss
49.900.000 Kr.
Sumarhús
3 herb.
73 m2
49.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
2.400.000

Borgir  fasteignasala kynnir eignina Hofsvík 7, 805 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 234-4320 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Hofsvík 7 er skráð sem sumarhús í Grímsnesi nánar tiltekið í Hraunborgum í landi Sjómannadagsráðs um 45 mín akstur frá Reykjavík. Birt stærð 73.8 fm.

Um er að ræða Kínverskt stálgrindar einingahús með tveimur svefniherbergjum, tveimur baðherbergjum, eldhúsi/borðstofu/stofu, mikilli lofthæð og gólfsíðum gluggum og fallegu útsýni. Hiti í gólfi frá Danfoss. Hallogen ljós í loftinu. Pallur með skjólvegg. Öryggisgler er í öllu húsinu. Auðvelt að setja upp heitan pott.
 
​​​​​​Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna M Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, [email protected] sími 8200788 
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, [email protected] sími 6905123


​​​​​​Nánari lýsing
Inngangur: Gengið beint inní stofu/borðstofu með plast parketi á gólfi með gólfsíðum gluggum sem snúa til suðurs, mikilli lofthæð og fallegu útsýni. 
Eldhús/borðstofa: Innrétting með tengi fyrir bakarofni, helluborð að gerðinni Vatti, vifta og vaskur. 
Hjónaherbergi: Með plastparketi, gólfsíðum gluggum og hurð út á pall, innaf herbergi er baðherbergi með sturtuklefa, baðinnréttingu með vask og upphengt salerni. Físar á gólfi og veggjum. 
Herbergi: með plastparketi. 
Baðherbergi: Baðinnrétting, Salernið er upphengt. Gólfið er flísalagt og veggir upp í loft, sturtuklefi.  
Skriðkjallari: Undir öllu húsinu 

Annað/Umhverfi
Lóðin er fallega staðsett með fallegu útsýni.
Lóðarleigusamningur í gildi til 31.ágúst 2067.
Öryggishlið inn á svæði og öflugt sumarhúsafélag.
​​​​​Búið er að greiða fyrir heitt og kalt vatn ásamt rafmagni. 
Rotþró í jörðu. Rafmagn tengt. Vegur og bílastæði. 
​​​​​​Stutt er í allskyns afþreyingu, útivstarsvæði og þjónustu. Á svæðinu eru t.d. sundlaug með heitum potti og eimbaði, hjólhýsastæði, æfingagolfvöllur, minigolf, sparkvöllur, leiksvæði fyrir börn og verslun sem starfrækt er að sumarlagi. Stærri golfvöllur, verslanir og margt fleira er svo í nokkura mínútna akstursfjarlægð
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir , í síma 8200788, tölvupóstur [email protected].

 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 62.000 mvsk.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.