Dalsbraut 14, 260 Njarðvík
62.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
87 m2
62.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2018
Brunabótamat
46.150.000
Fasteignamat
49.400.000


Borgir fasteignasala kynnir: Glæsilega, bjarta og vel skipulagaða 87,2 m2 enda íbúð á jarðhæð með sérinngangi í tveggja hæða fjölbýlishúsi í Innri Njarðvík.  Byggingarár er 2018. Eignin samanstendur af forstofu, 3 svefnherbergi, glæsilegu baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhúsi sem er opið inn í stofu, glæsilegan rúmgóðan sólpall og geymslu í sameign. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 84,3 m2 auk 2,9 m2 geymslu. Gólfhiti er í allri eigninni. Sérmerkt bílastæði. Sameiginleg hleðslustöð fyrir íbúa í húsinu.


Nánari lýsing:
Forstofa: með fallegum gráum flísum á gólfi.
Gangur: með harðparketi á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús: er opið inn í stofu með fallegri dökkri innréttingu með ljúflokunum þar sem gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, AEG ofn í vinnuhæð, AEG keramik helluborð með viftu yfir. Harðparket á gólfi.
Stofa: er mjög rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðan sólpall og hliði út í sameiginlegan garð.
Hjónaherbergi: með harðparket á gólfi og hvítum fataskáp á heilum vegg.
Barnaherbergi: 2 barnaherbergi með harðparket á gólfi og hvítum fataskápum.
Baðherbergi: með fallegri innréttingu ásamt efri skápum með speglahurðum,  einnig er mjög rúmgóð innrétting með miklu geymsluplássi þar sem gert er ráð fyrir þurrkara og þvottavél í vinnuhæð, flísar á gólfi og hluta til á veggjum. Handklæðaofn og rúmgóð sturta. 
Geymsla: með máluðu gólfi.

Í sameign er sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Innifalið í húsgjöldum er almennur rekstur, allur hitakostnaður, rafmagn í sameign og húseigandatrygging. Góð og snyrtileg aðkoma er að húsinu  Eignin er staðsett í vinsælu Stapaskóla hverfi. Stutt er í nýlegan Stapaskóla, leikskóla, og verslun.

** Falleg eign sem sannarlega er vert að skoða**

Nánari upplýsingar veitir Aron M. Smárason lfs. í síma 8887282, eða á [email protected]

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 62.000 mvsk.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.