Kjarrvegur 3, 108 Reykjavík (Austurbær)
Tilboð
Einbýli/ Einbýlishús með aukaíbúð
11 herb.
359 m2
Tilboð
Stofur
2
Svefnherbergi
7
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1982
Brunabótamat
160.000.000
Fasteignamat
195.500.000

Borgir  fasteignasala kynnir eignina Kjarrvegur 3:
Fallegt og vel skipulagt einbýlishús á eftirsóttum stað í nýrri hluta Fossvogsins í Reykjavík. Húsið, sem er samtals 359 fermetrar, samanstendur af hæð, risi, kjallara/auka íbúð og viðbyggðum bílskúr. Einnig fylgja 3 bílastæði og 1 í sameign í götunni.
Í kjallaranum er þriggja herbergja aukaíbúðaraðstaða með sérinngangi, sem auðvelt er að sameina við aðalíbúðina. Húsið er staðsett við göngu- og hjólastíg sem liggur að Nauthólsvík og áfram, sem og í átt að Fossvogi og Elliðárdalnum.
Stutt er í alla helstu verslun, þjónustu og skóla, enda staðsetningin vestast í Fossvogi mjög miðsvæðis á Höfuðborgarsvæðinu. Húsið var byggt árið 1982 og garðurinn var hannaður af Stanislas Bohic.

Nánari upplýsingar veitir Aron Már Smárason Löggiltur fasteignasali, í síma 8887282, tölvupóstur [email protected]

Nánari lýsing eignar:
I hæð
Forstofa: Flísalögð , með pláss fyrir fatahengi.
Gangur/Hol: Flísalögð með miklum skápum.
Herbergi: Inn af holi er herbergi, gott fataskápapláss.
Herbergi II: Inn af holi er herbergi.
Rúmgott eldhús með borðkrók, ágæt beiki innrétting. Gluggi út á verönd með inngang inná þvottahús.
Stofa: rúmgóð með sjónvarpshol, borðstofuborð og arinn. Málað 2022 og er útgengt útá suður garðinn og stóra verönd.
Baðherbergi flísalagt með vegghengdu salerni og handklæðaofni.
Þvottaherbergi innaf eldhúsi með sturtuklefa og skápum, útgengt þaðan útí garðinn.
Gengið úr þvottaherbergi í bílskúrinn sem er með millilofti að hluta og sjálfvirkum opnara.

Timburstigi er í holi uppí rishæðina
II hæð: 
Rúmgott hol með parketi

Baðherbergi rúmgott sem er í endurnýjun en selst í núverandi ástandi, komin ný loftklæðning þar og klósettkassi í vegg.
Hjónaherbergi með fataherbergi innaf og einnig litlu barna / skrifstofuherbergi. Báðir veggir eru léttveggir og hægt að breyta til.
Herbergi I er rúmgott og er útgengt á vestur svalir sem liggja undir þaki.
Herbergi II er rúmgott.
Háaloft er yfir rishæðinni (geymsluloft) með niðurdraganlegum stiga. Mikið geymslupláss.

Stigi úr holinu á 1.hæð niður í kjallaran þar sem er stór bókahilla og geymslupláss. Hægt auðveldlega að opna þar yfir í íbúðina sem er í kjallaranum. 

Kjallari / Aukaíbúð:
Sérinngangur
að vestanverðu og sérbílastæði þar.
Forstofa með stórum fataskáp
Sofa er rúmgóð og tengir öll herbergi saman.
Herbergi I er rúmgott
Herbergi II er rúmgott
Baðherbergi nýuppgert með flísum á veggjum og gólfi, walk-in sturta með gleri. Mora blöndunartæki, IKEA innréttingar, sérlögn í þvottavél og geymslu
Eldhús er með innréttingu, uppvöskunarvél, eldavél og ískápaplássi. 
Geymsla er rúmgóð innaf eldhúsi með góðu hilluplássi.
Íbúðin er með glugga uppvið loft, ekki margir gluggar en samþykktar teikningar eru fyrir fjölgun glugga. 

Verönd og Garður: Falleg ræktuð lóð með stórum afgirtum sólpöllum til suðurs og fallegur fjölbreyttur gróður. 

GÓLFEFNI: Flísar eru á forstofu, holi á 1.hæð, þvottaherbergi, baðherbergjum og kjallaranum öllum.  Nýlegt parket er á öðrum gólfum.

Upplýsingar frá seljanda:
Hellulagt bílaplan og stétt við aðalhúsið með hitalögn, ásamt hellulögðu bílaplani við aukaíbúðina með hitalögn.
Garðurinn var hannaður af Stanislas Bohic og endurgerður um 2005, þar á meðal var sett drenlögn meðfram húsinu.
Aðalíbúðin hefur nýlega verið máluð að innan.
Nýtt gler og gluggar eru í austurhlið hússins, auk nýlegs glers í um 34 öðrum rúðum, sem eru í góðu standi svo vitað sé.
Gervihnattadiskur sem er fastur við húsið fylgir með.
Skipta á um þakrennur og niðurföll á húsinu vorið 2021.
Hleðslustöð sett upp 2022
Heitapottur settur upp 2021
Tengigrind hitaveitu endurnýjuð að miklum hluta 2023
Fasteignamat 2025: 201.000.000 kr.

 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.   

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 62.000 mvsk.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.