Borgir fasteignasala kynnir eignina Barónsstígur 25, 101 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 200-5601 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Barónsstígur 25 er skráð á 1.hæð sem 2-3 herbergja íbúð með ósamþykktri stúdíóíbúð á neðri hæð. Birt stærð samtals 113.6 fm.
Um er að ræða tvær íbúðir til sölu, vel skipulögð og björt íbúð með svölum á 1.hæð og ósamþykktri stúdíóíbúð í kjallara hússins. Hentar mjög sem íbúð með annari í útleigu eða fyrir ungmenni. Frábær staðsetning.
Íbúðin á 1.hæð er skráð 69,3 fm en stúdíóíbúðin niðri er sögð 38,2 fm. Einnig fylgir 6,1 fm geymsla í kjallara.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8200788, tölvupóstur [email protected].Nánari lýsing eignar:
Frá útidyrum er gengið upp hálfa hæð upp að inngangi íbúðar á 1.hæð. Þar er komið í hol þangað sem gengið er inn í vistarverur.
Eldhús: Hvítri innréttingu með bakarofni, innbyggðum ísskáp og lítilli uppþvottavél. Stór gluggi sem snýr til vesturs út á Barónsstíg.
Baðherbergi: Með upphengdu salerni, sturtuklefa, handklæðaofni, vaski og fallegum flísum á gólfi.
Svefnherbergi/stofa/borðstofa: þrjú jafnstór herbergi sem hægt er að nota bæði sem stofu,borðstofu eða svefnherbergi úr einu herbergjanna er hægt að ganga út á svalir sem snúa í suðaustur eða út í bakgarð. Falleg glerhurð á milli tveggja herbergja. Laus skápur er í einu herbergjanna og getur hann fylgt með.
Íbúðin er með fallegu parketi með háum gólflistum, lofthæð er 2,80 cm, skrautlistar í lofti. Hurðarnar eru sprautulakkaðar hvítar.
Nánari lýsing á stúdíóíbúð: Gengið niður hálfa hæð.
Eldhús: Mjög rúmgóð innrétting með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Helluborð og bakarofn. Hár gluggi sem snýr til vestur eða út á Barónsstíg.
Baðherbergi: Með sturtuklefa, salerni og skáp með innbyggðum vaski.
Stofan/svefnherbergi: Er nýtt sem eitt rými. Laus fataskápur sem getur fylgt.
Hægt er að ganga inní stúdíóíbúðina beint úr bakgarði.
Ekki full lofthæð í kjallara. (ca 2,3 cm)
Umhverfi:Barónsstígur er í miðbæ Reykjavíkur og þvi stutt í allar verslanir, sundlaugar og skóla.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 62.000 mvsk.