Borgir fasteignasala kynnir: Glæsilega, bjarta og vel skipulagaða 87,2 m2 enda íbúð á jarðhæð með sérinngangi í tveggja hæða fjölbýlishúsi í Innri Njarðvík. Byggingarár er 2018. Eignin samanstendur af forstofu,
3 svefnherbergi, glæsilegu
baðherbergi með þvottaaðstöðu, eldhúsi sem er opið inn í stofu, glæsilegan
rúmgóðan sólpall og geymslu í sameign. Samkvæmt FMR er íbúðarhlutinn 84,3 m2 auk 2,9 m2 geymslu. Gólfhiti er í allri eigninni.
Sérmerkt bílastæði. Sameiginleg hleðslustöð fyrir íbúa í húsinu.
Nánari lýsing:
Forstofa: með fallegum gráum flísum á gólfi.
Gangur: með harðparketi á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús: er opið inn í stofu með fallegri dökkri innréttingu með ljúflokunum þar sem gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu, AEG ofn í vinnuhæð, AEG keramik helluborð með viftu yfir. Harðparket á gólfi.
Stofa: er mjög rúmgóð og björt með harðparketi á gólfi og útgengi út á rúmgóðan sólpall og hliði út í sameiginlegan garð.
Hjónaherbergi: með harðparket á gólfi og hvítum fataskáp á heilum vegg.
Barnaherbergi: 2 barnaherbergi með harðparket á gólfi og hvítum fataskápum.
Baðherbergi: með fallegri innréttingu ásamt efri skápum með speglahurðum, einnig er mjög rúmgóð innrétting með miklu geymsluplássi þar sem gert er ráð fyrir þurrkara og þvottavél í vinnuhæð, flísar á gólfi og hluta til á veggjum. Handklæðaofn og rúmgóð sturta.
Geymsla: með máluðu gólfi.
Í sameign er sameiginleg hjóla og vagnageymsla. Innifalið í húsgjöldum er almennur rekstur, allur hitakostnaður, rafmagn í sameign og húseigandatrygging. Góð og snyrtileg aðkoma er að húsinu Eignin er staðsett í vinsælu Stapaskóla hverfi. Stutt er í nýlegan Stapaskóla, leikskóla, og verslun.
** Falleg eign sem sannarlega er vert að skoða**
Nánari upplýsingar veitir Aron M. Smárason lfs. í síma 8887282, eða á
[email protected]Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 62.000 mvsk.