Borgir fasteignasala kynnir eignina Ferjubakki 5, 805 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 00-00, fastanúmer 251-9758 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Ferjubakki 5 er skráð sem hér segir hjá FMR birt stærð 7.571,2 fm.
Nánari upplýsingar veita:
Jóhanna Margrét Jóhannsdóttir , í síma 8200788, tölvupóstur [email protected].
Bjarklind Þór í síma, í síma 6905123, tölvupóstur [email protected] Lóðin er í landi Ásgarðs við Sogið í Grímsnesi- Grafningshreppi. Um er að ræða 7.571,2 fm lóð inn á skipulögðu sumarhúsasvæði. Svæðið er lokað með rafmagnshliði. Þetta er hitaveitusvæði, rafmagn og vatn er komið inn á svæðið. Gott útsýni. Lóðin er staðsett aðeins í rúmlega 10.mín akstursfjarlægð frá Selfossi, farið er framhjá Þrastarlundi og Hótel Grímsborgum. Árgjald í félag sumarhúsaeigenda á svæðinu er 50.000.-
Stutt er í þekkta staði á suðurlandi svo sem Skálholt, Þingvelli, Laugarvatn, Gullfoss og Geysir og einnig til Kersins. Einnig er stutt í veiði, golfvelli, íþróttavöll og fallegar gönguleiðir.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill Borgir því skora væntanlega kaupendur á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bæra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 62.000 mvsk.